Velfarnaður merki

velfarnadur.is

Heimasíðan er í mótun en á meðan er hægt að hafa samband við bjorg@velfarnadur.is eða gudbjorg@velfarnadur.is

Við brennum fyrir það að efla íslenskt samfélag með því að bæta velfarnað (e. wellbeing) kennara og annars starfsfólks í skólum landsins með það að markmiði að styrkja velfarnað nemenda. Aukin velfarnaður leiðir af sér meiri vellíðan og meiri árangur. Við erum þeirrar skoðunar að öflug félags-, tilfinninga- og siðferðisfærni allra sem að skólastarfinu koma sé grunnurinn að hamingjusömu samfélagi. Slíka færni gengur betur að efla í öruggu og nærandi umhverfi fyrir bæði starfsfólk og nemendur. Mikilvægt er að vanda til verka við innleiðingu og vinnu að þessum markmiðum með markvissri áætlanagerð sem tekur mið af sérstöðu hvers skóla. Það felur m.a. í sér öfluga fræðslu og þjálfun fyrir starfsfólk auk forgangsröðunar og sveigjanleika þar sem slíkri vinnu er veitt nægjanlegur tími og rúm í starfi skóla. 

Við bjóðum upp á pakka sem felur í tveggja ára innleiðingarferli á vaxtarhugarfari til að nýta í þessum tilgangi. Þá er fyrst unnið með starfsfólkið í eitt ár og svo er nemendum kennt og vaxtarhugarfarið ofið inn í allt skólastarfið. Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á gudbjorg@velfarnadur.is eða bjorgkristin@velfarnadur.is